Já það hefur nú heldur betur mikið á mína daga drifið undanfarið...

María er búin að vera hérna í heila viku og einn dag. Mjög
gaman. Ég fór bara að vinna á Miðvikudaginn og Fimmtudaginn, og
auðvitað 2 kaup sem var mjög gott.

Fattaði svo að það væri ekki
opið í ríkinu fyrr en á laugadaginn, svo ekki var djammað fyrr en
þá.

Á Föstudaginn var kalkúnaboð hérna heima, þar sem Badda,
Steini og Amma komu að snæðingi með fjölskyldunni. Það var
náttúrulega einsog gengur og gerist í mataboðum. Ég var nú eitthvað
uppstökk það kvöld, en fór snemma í háttinn enda erfiður vinnudagur
daginn eftir.

María hins vegar lét ekki á sig vanta, og fór á
rúntinn með einhverju fólki. Laugadagurinn var ágætis tjill í
vinnunni ef svo má að orði komast. Auðvitað bara 3 kassar, svo
þessir 3 sem voru á kassa, og Stína voru þau einu sem höfðu í
rauninni eitthvað að gera, samt vorum við 8 að vinna alltí allt.
Enda vorum við stelpurnar fljótar að uppgötva prumpuslímið,
SringaSton raðaði í sömu körfuna 4 sinnum.

Einsog við er að
búast, fór María á fyllerí um kvöldið, en ég var svo þreitt og
ómuguleg að eg nennti því engannveginn, kom mér vel fyrir fyrir
framan sjónvarpið og talaði við hann Ara minn, sem ég er nú farin
að sakna svolítið mikið.

Upp rennur Páskadagur, og vakna ég um
hálf 12 leitið. Þá liggur ein hress við hliðiná mér, spyr hvað
klukkan sé ummlar eitthvað, sprettur svo upp og kallar "mm
Páskaegg"

Páskadagur er yndislegur dagur. Maður má borða nammi í
morgunmat án þess að vera skammaður. Maður borðar nammi allan
daginn, liggur uppí rúmi og gerir ekkért. Enda var klukkan nú ekki
lengi að slá hálf 7, og var komið að matarboði í boði Böddu og
Steina. Alveg makalaust hvað það er gott að fara í mat hjá þeim,
þar sem maturinn er alltaf 100%

Fengum eitt stikki Italiano
forrétt, veit nú ekki með vissu hvað þetta var, en það kitlaði
bragðlaukana nú heldur betur get eg sagt ykkur. Svo kom þarna við
sögu eitt lambalæri, sem mér hefur nú aldrei þótt gott, en ég get
fullvissað ykkur um að þetta var það besta í heimi með
kartöflusallatinu. Mmmm fæ alveg vatn í munninn. Eftirrétturinn var
ekki af verri gerðinni, ein ostakaka, sem eg reyndar smakkaði ekki,
vegna södduleika og svo var þarna ein kókósbollukaka sem var líka
ótrúlega góð. Eftir þessa næringu, keyrði kappinn hann pabbi okkur
Maríu heim, og við fórum að undirbúa okkur fyrir smá djammfíling.
Nákvæmlega enginn virtist vera heima og til í partýhöld, svo það
endaði með því að Ragnhildur okkar kæra stúlka, plöggaði Kára í
keyrslu til Reyðafjarðar að sækja sig, og svo var bara skellt sér á
djamm. Atburðir kvöldsins voru hlæilegir. Ég og María fórum með
Gumma og StebbaÓla á rúntinn á fordinum, og svo fórum við yfir til
Kára, Vilborgar og Ragnhildar. Við rúntuðum alveg til 5 eða
eitthvað, en þá skéði einmitt það leiðindar atvik, að dekkið undan
fordinum hreynlega skoppaði af á miðri götu.

Hvað sem því líður
var mamma hennar Ragnhildar alveg ólm í að fá okkur í partý, en það
fór svo að ég, Óli og StebbiÓli skelltum okkur. Mamma hennar
Ragnhildar var nú fljótt látin fara, vegna kvartanna um hááááa
tóna.

Ég rölti svo í mínum rólegheitum heim klukkan 11 í morgun
og svaf þangað til ég var vakin í afmæliskaffið hennar Maríu heima
hjá ömmu. María er 17 ára í dag. Hamingju!!

Nú planið er að
skélla sér Norður á miðvikudaginn og vera fram á laugardag. Þá fer
nú Ari að koma heim og svona

Þannig það er ekki langt að bíða.
EN hvað sem því líður, þá þarf eg ógurlegt magn af vatni og svefni
í dag og er ákveðin í því að stunda það nú eftir bestu getu...
Farvell!